Frétt

19.12.2008

Sylindrar fyrir læsingar - mesta fáanlega öryggið á markaðinum í dag

Í flestum tilfellum eru þeir sylindrar sem eru algengastir í hurðum landsins nægjanlegt öryggi fyrir t.d. heimili fólks. Þetta er þó alltaf matsatriði. Þessa algengu sylindra má pikka upp eða jafnvel "bumpa".  Í viðkomandi tilfellum þarf þó lægni og þjálfun sem yfirleitt er ekki aðgengileg nema hjá sérfræðingum t.d. "lásasmiðum". (Löggiltir lásasmiðir eru að vísu ekki til á Íslandi). Ef fréttist um svona þá ber tafarlaust að tilkynna það til lögreglu.

Raunveruleikinn er þó þannig á Íslandi að innbrot eru framin í skyndi og þá með því að spenna upp glugga eða hurð með t.d. kúbeini. Ekki er staðfest að innbrot hafi verið framin með pikki eða "bumpi" að því að best er vitað. Einnig eru þjófavarnarkerfi mun algengari á Íslandi en almennt í t.d. Evrópu og skiptir þá ekki máli hvernig innbrot er framið - spurninginn er frekar um að vera nógu fljótur að hafa sig á brott með fenginn hvað þjófinn varðar. Hægt er að leysa þetta á tiltölulega hagkvæmu verði með aukalæsingu fyrir skegglykil í hurðina frá Assa/Fas t.d. nr 309 sem er algeng lausn í t.d. Noregi og Svíþjóð.

 

Til eru sylindrar frá Assa og Abloy sem eru taldir þeir bestu sem fáanlegir eru í heiminum hvað varðar pikk, "bump", borun ofl.

Abloy Protec er t.d. talin af sérfræðingum (European Lockpicking Association) öruggasti sylinder sem til er í heiminum í dag (mekanískur). Assa dp Cliq er t.d. talið eitt öruggasta aðgangskerfið/höfuðlyklakerfið sem til er í heiminum í dag (mekanískt og rafeindastýrt).

Við höfum þegar byrjað að bjóða fyrrgreindar lausnir á Íslandi og hafa fyrstu Assa dp Cliq og Assa dp 4400 aðgangskerfin/höfuðlyklakerfin verið sett upp og tekin í notkun á Íslandi. Abloy Protec hefur verið á markaðinum í nokkur ár og hefur verið seldur sem öryggissylinder fyrir heimili ásamt því að nokkur aðgangskerfi/höfuðlyklakerfi hafa verið seld og tekin í notkun.

Ef að forsvarsmenn fyrirtækja eða einstaklingar vilja vera allt að 100% öruggir um að ekki sé farið inn um hurð án þess að þeir viti um það þá eru lausnirnar til. Hafið samband við sérfræðinga okkar ef ykkur vantar frekari upplýsingar.

Hafðu samband ef þú vilt fá "Assa Öryggishandbókina" senda.

www.assa.se

www.abloy.com

<<Til baka

Tenglar